Það er aldeilis að veðurguðirnir eru ósammála þessa dagana.Það
er frábært veður einn daginn og svo rigning og skítakuldi þann
næsta. Ég væri nú bara til í almennilegt sumar með sól, blíðu og
hitaskúrum inn á milli. Annars sökka ég feitt að vera tala um
veðrið en það er algengasta umræðuefni á íslandi. ég er því að
hugsa um að snú mér að öðru, sem er í 2.sæti um algeng umræðuefni,
nefnilega fótbolta
Við töpuðum síðasta leik á móti Völsung 3-1. Við fengur þarna
smá skell á rassinn og stelpurnar frekar un-happy. Mér finnst hins
vegar ágætt að vera flengd svona öðru hverju en ég vona að við
verðum betri á miðvikudaginn en þá tökum við á móti Völsungum,
sennilega út á Hrafnagili. Ég reikna með að sem flestir láti sjá
sig og styðji sína menn. Það var þvílíkur áhorfenda fjöldi á
Húsavík, vona að okkar stuðningslið sé ekki minna!
Ferðalög og brúðkaup eru líka sæmilega algeng umræðuefni,
sérstaklega á sumrin og ég ætla því að láta það fylgja með í þessu
bloggi. Ég er að fara í brúðkaup í Hafnarfirði á Laugardaginn 17.
júní hjá Helgu vinkonu og Gauta. Reikna með massa fjöri þar. Svo
flyg ég út til Póllands þann 18. ég ætlaði að fara fyrr en ég
senkaði þeirri för meðal annars til að komast í brúðkaupið.
Valur er að fara í fyrramálið til Pólski en þetta land hefur
verið okkur ofarlega í huga í vor og sumar af ýmsum ástæðum. Nú er
komin tími til að skoða það betur.
Jæja allir á völlinn á miðvikudaginn. Þrusu spennandi leikur í
vændum.
GO MAGNI, GO MAGNI, GO MAGNI.
p.s. fyrst ég er að hafa fyrir því að blogga þá skuluð þið
endilega kvitta fyrir ykkur í kommentin eða (og enn betra) láta
skoðun ykkar í ljós og þá sérstaklega þú Dandi!!!!